Fara beint í efni

Samsetning

Settið kemur vírað og prófað — þú þarft bara að skrúfa saman og stinga tengjum í samband. Engin lóðun. Gerðu ráð fyrir um 30–60 mínútum.

Leiðbeiningarnar eru í vinnslu. Ef eitthvað er óljóst, sendu póst á bensi@hitt.is og ég hjálpa þér.

Í kassanum

Fer eftir útgáfunni sem þú valdir:

  • 3 standar með myndavélafestingum og 3 myndavélar (USB)
  • Hvítur ljósahringur
  • Bakland — miðja og 3 armar (fullbúið sett)
  • WLED hringur og WLED stýring (fullbúið sett)
  • 12V spennir
  • Skrúfur

Þú þarft: skrúfjárn, borvél og málband.

1. Settu baklandið saman

Baklandið: miðja og þrír armar

Festu armana þrjá í miðjuna með skrúfunum sem fylgja.

2. Festu baklandið á vegginn

Baklandið skrúfað á vegg

Miðja spjaldsins á að vera í 173 cm hæð frá gólfi (keppnishæð). Skrúfaðu það með 4 skrúfum.

3. Festu WLED hringinn

WLED hringurinn

WLED hringurinn fer á baklandið, á bakvið spjaldið, og lýsir á vegginn.

4. Festu hvíta ljósahringinn

Hvíti ljósahringurinn

Ljósahringurinn fer utan um spjaldið og festist á armana.

5. Settu standana með myndavélunum á ljósahringinn

Þrír standar með myndavélum á ljósahringnum

Standarnir þrír festast með jöfnu millibili á ljósahringinn. Myndavélarnar snúa inn að spjaldinu.

6. Hengdu spjaldið upp

Mynd kemur

Spjaldið fer á miðju baklandsins. Talan 20 á að snúa beint upp.

7. Tengdu snúrurnar

Mynd kemur

Stingdu tengjum ljósahringjanna í stýringuna — þau passa bara á einn veg. Myndavélarnar fara með USB í tölvuna sem keyrir Autodarts. Stingdu svo spenninum í samband.

8. Settu upp WLED (fullbúið sett)

WLED veggljósið kveikt í grænum lit

Opnaðu WLED appið í símanum og tengdu stýringuna við heimanetið. Þá getur þú valið liti og áhrif.

9. Settu upp Autodarts

Búðu til aðgang á autodarts.io og fylgdu leiðbeiningum þeirra til að tengja og stilla myndavélarnar.